22febrúar

Blogg blogg

Já er er mjög löt við þetta og veit það:o) það hefur nú ekki mikið gerst hjá mér síðustu daga...bara þetta venjulega,skólinn,hestarnir og vinnan:o)....jú það er mót um helgina...er búin að ákveða að keppa en bara ekki búin að finna hest....en það reddast örugglega eins og alltaf...hef ekki miklar áhyggjur af því:o) Svo er ég búin að ákveða að fara vestur um páskana til hennr Eydísar minnar...GET EKKI BEÐIÐ:o) hlakka alveg óendanlega mikið til......

En veit ekki alveg afhverju ég er að halda þessari bloggsíðu ppi... ég nenni aldrei að skrifaog þar af leiðandi allir löngu hættir að nenna droppa hér inn...allir nema Eydís:o)

En jamm...ég veit ekkert hvað ég á að skrifa....veitt barasta ekkert...blogga seinna...:o)
22. febrúar 2008 klukkan 00:57
Friðriká Árný Rafnsdóttir
5 athugasemdir
16febrúar

Næturvakt

Jámm.... er að klára næturvakt núna...leiddist svo ég ákvað bara að blogga pínu...hef nú samt voða lítið að segjaBrosandi En VÁ hvað ég er orðin þreytt og hlakka til að leggjast upp í rúm heima...get ekki beðiðSkömmustulegur

En jamm ég var sko ansi dugleg í gær....var í skóanum til kl.13 og náði að vinna mig upp um tvær vikur(var nefnilega veik á síðasta föstudag og varð aftur úr.... EN jamm eftir það fór ég upp í hesthús og náði að hreyfa TÍU hross...geggt dugleg:)
Svo beint á næturvakt kl.21.....Hörkukvendi...enda er ég alveg að deyja úr þreytu núna.......

FOLALDASÝNING Í DAG!!!!...Get ekki beðið.....hlakka svo til að sjá hana.....
hún verður haldin í reiðhöllinni í sörla....

En er búin að vinna svo ég heyri í ykkur seinna lov´ya

16. febrúar 2008 klukkan 08:51
Friðriká Árný Rafnsdóttir
3 athugasemdir
14febrúar

Síðustu dagar...

Jamm það er bara geðveikt mikið búið að gerast síðustu daga.... á fimmtudaginn fyrir viku héldum við mótanefnd sörla,  ístölt upp á Hvaleyrarvatni.....það var sko BRJÁLAÐ VEÐUR...en samt alveg ótrúlega fín skráning miða við veðrið, það voru eitthvað vel rúmlega 30 skráningar.....

Svo á föstudaginn sátum við hrabba sveittar heima við að sauma búning á okkur fyrir Grímutöltið sem við mótanefndin sáum um á laugardaginn.... Við vorum síamstvíburar, í sömu buxunum og sömu peysunni með fjórar ermar..haha og á sama hesti, þetta var geggjað fyndið og auðvita lentum við í sæti.....við vorum í öðru og þriðja  sæti.....

En það helsta sem er búið að gerast er það að ég fékk alveg BESTU HELGARHEIMSÓKN EVER!!!! haldiði ekki að hún Eydís hafi komið til mín á laugardaginn og verið alveg fram að mánudagsmorgni með litlu snúlluna með sér...þetta var alveg frábært....alveg ótrúlega gaman að hafa þær...Hlæjandi  Ég náttúrlega spillti Laufey litlu alveg út í eitt....hún mátti sko ALLT á meðan hún var....en ég vona að hún Eydís fyrirgefi mér það.....Glottandi það er bara svo sjaldan sem maður hittir litlu skvísuna, þannig að maður verður að dekra hana pínu svona til að vinna sér inn smá punktaBrosandi 

Á laugardagskvöldið ætluðum við Eydís svo að dressa okkur pínu og kíkja á aroma í firðinum....sem við gerðum.... en nei það var svo dautt þar að það lá við að við þömbuðum hvítvínið okkar og hlupum út til að panta taxa...þetta var bara dauðara en allt dautt!!! svo við fórum bara heim að sofa..... Svo kíktum við bara í bíó á sunnudagskvöldinu....fórum á brúðgumann...hún var mjög fín!!!

Vora að þær komi bara aftur sem allra fyrst.....

En ætla að halda áfram að læra....bæbæ
14. febrúar 2008 klukkan 15:09
Friðriká Árný Rafnsdóttir
2 athugasemdir
03febrúar

Þorrablótið!!!

Jamm það var sko heldur betur tekið vel á því í gærkvöldi á þorrablóti Sörla.....Var einum of dugleg í þessu blessaða hvítvíni...Brosandi Enda er ég líka búin að fá að finna heldur betur fyrir því í dag...alveg að drepast úr þynnkuGráta  og mætti  í vinnu kl.9 í morgun og er að vinna alveg til kl.21.....ég er ekki frá því að ég hafi verið enþá full þegar ég mætti...hahaHlæjandi

Hvað haldiði að stelpan hafi gert í vitleysunni á blótinu...hún tók sig til og bauð í djóki í pakka á böglauppboðinu á TUTTUGU OG EITT ÞÚSUND og vitir menn fyrsta, annað þriðja og slegið....hún vann!!!! eða réttast sagt tapaði pening!! En hann Hilmar kom til bjargar og borgaði helminginn á móti mér...Takk takkBrosandi

Fór svo í bíó með einn íbúann kl.16...og var svo heppin að hún Hrabba sys var svo góð að koma og veita mér félagsskap og kom með í bíó...á þessa líka ógeðslega leiðinlegu mynd...ég hefði dáið þarna...takk HrabbaGlottandi

En jamm veit ekkert hvað ég á meira að segja....blogga seinnaGlottandi
03. febrúar 2008 klukkan 20:03
Friðriká Árný Rafnsdóttir
2 athugasemdir
01febrúar

Frikka Eyðslukló...:)

Já við erum að tala um það að stelpan keypti sér nýjann kjól í dag...GEGGJAÐANN!! og ekki nóg með það að hún kaypti sér svartann ullarjakka líkaHlæjandi jájá...ég ELSKA mánaðarmótGlottandi Það er þorrablót á morgun og maður verður nú að vera fínn....

Ég fór á Meistaradeild vís í ölfushöllinni í gær...var svo ótrúlega heppin að eiga svona góða vini sem buðu mér meðBrosandi...þetta var rosa fínt....fannst samt svolítið mikið um slaka hesta...

EN ég fékk sko geggt góðar fréttir í gærkvöldi...Haldiði ekki að hún Eydís vínkona hafi hringt í mig og sagt mér að hún væri að skoða flugfar suður fyrir sig og ´snúllu litluHlæjandi Og ekki nóg með það að henni vantaði gistingu....bara frábært...auðvita fá þær gistingu heima...ekkert mál...Get ekki beðið eftir því að fá þær....Ekkert smá langt síðan ég sá þær....Sérstaklega snúlluna mína, hana Laufey Dís!!!! Hún er bara Fallegasta barn í heimi...

En jamm...ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna...er í vinnunni og verð víst að sinna henni.....heyri í ykkurGlottandi
01. febrúar 2008 klukkan 19:29
Friðriká Árný Rafnsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Könnun

Ætlið þið á Landsmótið í sumar..á Hellu???

Jólin að koma