Síðustu dagar...

Jamm það er bara geðveikt mikið búið að gerast síðustu daga.... á fimmtudaginn fyrir viku héldum við mótanefnd sörla,  ístölt upp á Hvaleyrarvatni.....það var sko BRJÁLAÐ VEÐUR...en samt alveg ótrúlega fín skráning miða við veðrið, það voru eitthvað vel rúmlega 30 skráningar.....

Svo á föstudaginn sátum við hrabba sveittar heima við að sauma búning á okkur fyrir Grímutöltið sem við mótanefndin sáum um á laugardaginn.... Við vorum síamstvíburar, í sömu buxunum og sömu peysunni með fjórar ermar..haha og á sama hesti, þetta var geggjað fyndið og auðvita lentum við í sæti.....við vorum í öðru og þriðja  sæti.....

En það helsta sem er búið að gerast er það að ég fékk alveg BESTU HELGARHEIMSÓKN EVER!!!! haldiði ekki að hún Eydís hafi komið til mín á laugardaginn og verið alveg fram að mánudagsmorgni með litlu snúlluna með sér...þetta var alveg frábært....alveg ótrúlega gaman að hafa þær...Hlæjandi  Ég náttúrlega spillti Laufey litlu alveg út í eitt....hún mátti sko ALLT á meðan hún var....en ég vona að hún Eydís fyrirgefi mér það.....Glottandi það er bara svo sjaldan sem maður hittir litlu skvísuna, þannig að maður verður að dekra hana pínu svona til að vinna sér inn smá punktaBrosandi 

Á laugardagskvöldið ætluðum við Eydís svo að dressa okkur pínu og kíkja á aroma í firðinum....sem við gerðum.... en nei það var svo dautt þar að það lá við að við þömbuðum hvítvínið okkar og hlupum út til að panta taxa...þetta var bara dauðara en allt dautt!!! svo við fórum bara heim að sofa..... Svo kíktum við bara í bíó á sunnudagskvöldinu....fórum á brúðgumann...hún var mjög fín!!!

Vora að þær komi bara aftur sem allra fyrst.....

En ætla að halda áfram að læra....bæbæ
14. febrúar 2008 klukkan 15:09
Friðriká Árný Rafnsdóttir
Sæl Friðrika, rakst á síðuna þína. Ert þú ekkert leið á þessari klukku? hún er oft snarvitlaus að ég hætti með hana. Bið að heilsa mömmu þinni.
14. febrúar 2008 klukkan 15:38
Eydís skrifar ...
gleðilegan valetínusardag í gær sæta.. dagurinn var ekkert merkilegur hjá mér í gær en hjá þér..? kom eikker þér á óvart?
En jámm takk kærlega fyrir mig, æðisleg helgi í alla staði, vona að ég komi fljótt aftur :) Skilaðu kveðju til múttu þinnar og systur.. stórt KRAM til þín :)
15. febrúar 2008 klukkan 11:28

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Könnun

Ætlið þið á Landsmótið í sumar..á Hellu???

Jólin að koma