22febrúar
Já er er mjög löt við þetta og veit það:o) það hefur nú ekki mikið gerst hjá mér síðustu daga...bara þetta venjulega,skólinn,hestarnir og vinnan:o)....jú það er mót um helgina...er búin að ákveða að keppa en bara ekki búin að finna hest....en það reddast örugglega eins og alltaf...hef ekki miklar áhyggjur af því:o) Svo er ég búin að ákveða að fara vestur um páskana til hennr Eydísar minnar...GET EKKI BEÐIÐ:o) hlakka alveg óendanlega mikið til......
En veit ekki alveg afhverju ég er að halda þessari bloggsíðu ppi... ég nenni aldrei að skrifaog þar af leiðandi allir löngu hættir að nenna droppa hér inn...allir nema Eydís:o)
En jamm...ég veit ekkert hvað ég á að skrifa....veitt barasta ekkert...blogga seinna...:o)
16febrúar
Jámm.... er að klára næturvakt núna...leiddist svo ég ákvað bara að blogga pínu...hef nú samt voða lítið að segja
En VÁ hvað ég er orðin þreytt og hlakka til að leggjast upp í rúm heima...get ekki beðið
En jamm ég var sko ansi dugleg í gær....var í skóanum til kl.13 og náði að vinna mig upp um tvær vikur(var nefnilega veik á síðasta föstudag og varð aftur úr.... EN jamm eftir það fór ég upp í hesthús og náði að hreyfa TÍU hross...geggt dugleg:)
Svo beint á næturvakt kl.21.....Hörkukvendi...enda er ég alveg að deyja úr þreytu núna.......
FOLALDASÝNING Í DAG!!!!...Get ekki beðið.....hlakka svo til að sjá hana.....
hún verður haldin í reiðhöllinni í sörla....
En er búin að vinna svo ég heyri í ykkur seinna lov´ya
14febrúar
Jamm það er bara geðveikt mikið búið að gerast síðustu daga.... á fimmtudaginn fyrir viku héldum við mótanefnd sörla, ístölt upp á Hvaleyrarvatni.....það var sko BRJÁLAÐ VEÐUR...en samt alveg ótrúlega fín skráning miða við veðrið, það voru eitthvað vel rúmlega 30 skráningar.....
Svo á föstudaginn sátum við hrabba sveittar heima við að sauma búning á okkur fyrir Grímutöltið sem við mótanefndin sáum um á laugardaginn.... Við vorum síamstvíburar, í sömu buxunum og sömu peysunni með fjórar ermar..haha og á sama hesti, þetta var geggjað fyndið og auðvita lentum við í sæti.....við vorum í öðru og þriðja sæti.....
En það helsta sem er búið að gerast er það að ég fékk alveg BESTU HELGARHEIMSÓKN EVER!!!! haldiði ekki að hún Eydís hafi komið til mín á laugardaginn og verið alveg fram að mánudagsmorgni með litlu snúlluna með sér...þetta var alveg frábært....alveg ótrúlega gaman að hafa þær...

Ég náttúrlega spillti Laufey litlu alveg út í eitt....hún mátti sko ALLT á meðan hún var....en ég vona að hún Eydís fyrirgefi mér það.....

það er bara svo sjaldan sem maður hittir litlu skvísuna, þannig að maður verður að dekra hana pínu svona til að vinna sér inn smá punkta
Á laugardagskvöldið ætluðum við Eydís svo að dressa okkur pínu og kíkja á aroma í firðinum....sem við gerðum.... en nei það var svo dautt þar að það lá við að við þömbuðum hvítvínið okkar og hlupum út til að panta taxa...þetta var bara dauðara en allt dautt!!! svo við fórum bara heim að sofa..... Svo kíktum við bara í bíó á sunnudagskvöldinu....fórum á brúðgumann...hún var mjög fín!!!
Vora að þær komi bara aftur sem allra fyrst.....
En ætla að halda áfram að læra....bæbæ
03febrúar
Jamm það var sko heldur betur tekið vel á því í gærkvöldi á þorrablóti Sörla.....Var einum of dugleg í þessu blessaða hvítvíni...

Enda er ég líka búin að fá að finna heldur betur fyrir því í dag...alveg að drepast úr þynnku

og mætti í vinnu kl.9 í morgun og er að vinna alveg til kl.21.....ég er ekki frá því að ég hafi verið enþá
full þegar ég mætti...haha

Hvað haldiði að stelpan hafi gert í vitleysunni á blótinu...hún tók sig til og bauð í djóki í pakka á böglauppboðinu á
TUTTUGU OG EITT ÞÚSUND og vitir menn fyrsta, annað þriðja og slegið....hún vann!!!! eða réttast sagt tapaði pening!! En hann Hilmar kom til bjargar og borgaði helminginn á móti mér...Takk takk

Fór svo í bíó með einn íbúann kl.16...og var svo heppin að hún Hrabba sys var svo góð að koma og veita mér félagsskap og kom með í bíó...á þessa líka
ógeðslega leiðinlegu mynd...ég hefði dáið þarna...takk Hrabba

En jamm veit ekkert hvað ég á meira að segja....blogga seinna
01febrúar
Já við erum að tala um það að stelpan keypti sér nýjann kjól í dag...GEGGJAÐANN!! og ekki nóg með það að hún kaypti sér svartann ullarjakka líka

jájá...ég ELSKA mánaðarmót

Það er þorrablót á morgun og maður verður nú að vera fínn....
Ég fór á Meistaradeild vís í ölfushöllinni í gær...var svo ótrúlega heppin að eiga svona góða vini sem buðu mér með

...þetta var rosa fínt....fannst samt svolítið mikið um slaka hesta...
EN ég fékk sko geggt góðar fréttir í gærkvöldi...Haldiði ekki að hún Eydís vínkona hafi hringt í mig og sagt mér að hún væri að skoða flugfar suður fyrir sig og ´snúllu litlu

Og ekki nóg með það að henni vantaði gistingu....bara frábært...auðvita fá þær gistingu heima...ekkert mál...Get ekki beðið eftir því að fá þær....Ekkert smá langt síðan ég sá þær....Sérstaklega snúlluna mína, hana Laufey Dís!!!! Hún er bara Fallegasta barn í heimi...
En jamm...ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna...er í vinnunni og verð víst að sinna henni.....heyri í ykkur
30janúar
Já það styttist óðum í helgina...get ekki beðið....

bara morgundagurinn eftir og svo er ég komin í helgarfrí...eða allaveganna frá skólanum....en EKKI vinnunni

Er að vinna ALLA HELGINA....nema ekki á laugardagskvöldið...en þá er ég að fara á þorrablót...víííí hlakka geggt tím....Er einmitt kanski að fara að leyfa mér að kaupa nýjann kjól á morgun

En annasr er voða lítið búið að gerast...er bara í skólanum núna og verð þar til kl 12.30 og svo er ég bara búin í dag

fer líklega bara að ríða út eða eitthvað:)
en heyri í ykkur seinna bæbæ
28janúar
Í grenndinni veit ég um vin sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér ófluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer,
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rerum.
?Ég hringi á morgun,? ég hugsaði þá,
?svo hug minn fái hann skilið?
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd,
gleymd'ekki hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnum send,
er sannur og einlægur vinur.
28janúar
Strákar virðast alltaf misskilja mann...þetta er alveg ótrúlegt... Ef maður vill bara vera vinur þá þurfa þeir alltaf að vilja alltaf meira... þeir geta ekki bara verið vinir manns...nei ef maður ætlar að eiga stráka vin þá þarf maður að vera á föstu til þess að þeir misskilji ekki vináttuna og ef maður erá föstu þá getur meður ekki átt strákavin saf því þá verður kærastinn abbó....vá ég hef alla tíð sagt að þetta kyn sé eitthvað furðulegt...!!!!
en langaði bara aðeins að deilaþessu með eitthverjum fyrir svefninn...góða nótt
27janúar
Já það er sko vibba veður..... hélt að húsið væri að fjúka þegar ég vaknaði í morgun....
ojjj var sko ekki að nenna að fara fram úr til þess að klæða mig til að fara upp í hesthús að gefa morgungjöfina....

En jamm.... það er nú ekki mikið búið að gerast hjá mér síðan síðast....er bara á fullu í öllu...skólinn, vinna, ræktin og ríða út... Er alveg að fíla þennan skóla...eða þessa braut sem ég er á (tækniteiknun), þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt...

já svo er maður bara á fullu að riða út eins og alltaf...Er samt með slæmar fréttir af hestinum sem ég fékk lánaðan til að reyna að þjálfa til að keppa á, hef verið að ríða honum síðustu daga inn í höll og held að ég skili honum...sýnist þetta vera eitthver vitleysingur....ætla samt að gefa honum aðeins lengri sés og sjá hvernig fer...
Mér er eiginlega farið að langa pínu að skreppa vestur í heimsókn.....það er svo ótrúlega langt síðan ég fór þangað...alveg HÁLFT ÁR!!! er eiginlega farin að sakna Eydísar vinkonu svolítið ótrúlega mikið og dauðlangar að fara að sjá litlu snúlluna

......vonandi get ég skroppið sem fyrst í heimsókn...yfir eina helgi eða eitthvað.....
En jamm svo er ég að fara að vinna á eftir... Ojjj bara....er svo bara í stuði til að vera heima svona einu sinni...en ætla að fara að henda mér í sturtu og taka smá til áður en ég fer að vinna svo ég bið bara að heilsa..... lov´ya
21janúar
Er hægt að vera lélegri bloggari en ég....Bwahaha.... ég nenni aldrei að blogga....og Allir alltaf að tuða í mér að blogga....hehe
En alla vega...það er alveg fullt búið að gerast hjá mér...stelpan er bara byrjuð í skóla aftur...HAHA eru þið að trúa því:) Nei hélt ekki..... Svo er maður bara á fullu í hestunum eins og venjulega og búin að minnka aðeins við vinnuna:)
En blogga vonandi sem fyrst ...veit samt ekki alveg hvenær...bæbæ